KFC-Tutta-Djusi-BMW

Þar sem erótíkin er ávalt í fyrirrúmi!

fimmtudagur, mars 03, 2005

MSN!!!

Vá hvað það er vonlaust að vera ekki með msn í vinnunni og það sérstaklega í dag þegar mar bíður spennt eftir að gleðin byrji :oD
Eru þið ekki allez spennt fyrir kveldinu beljurnar mínar??
E-ð gengur mér illa að velja fokkings outfitið þannig að ég hef ákveðið að vera bara í g-streng, háhælum stígvélum og bindi, held það komi bara best út....
Ég er ekki enn búin að sjá "HALLÓ-ið" sem ég sá hérna í gær í vinnunni og ég bíð alveg með óþreyju að sjá þetta "HALLÓ!!" aftur koma svo, finnst nú alveg vera kominn tími til að mæta!!!
En já ég sit hérna ein út í horni, búin að gera vinnuna mína og kemst ekkert á msn :o( Held ég fari bara í bakaríið....

fimmtudagur, febrúar 24, 2005

Árshátíðin

Okey KFC er bara búinn að yfirgefa okkur :o(
En já það sem er næsta mál á dagskrá hjá okkur er árshátíðin og erum við nú á fullu að skipuleggja djúsí dag og partý. Svo erum við líka að reyna að finna upp á þema fyrir ballið, við eigum soldið erfitt með að finna upp e-ð sniðugt til að vera með þessa árshátíðina endilega. Endilega hjálpið okkur að finna upp á e-u sneddý ;o) komið með hugmyndir í kommentin.
Og já svo er maður að reyna að fá þetta líflega fólk í bekknum til að gera e-ð að deginum til, fara í keilu eða pool eða e-ð. Komon þetta er síðasta árshátíðin okkar í skólanum þannig að mar verður að taka þátt í þessum degi að fullu, reyndar hef ég mikið að setja út á þennan matseðill, þetta er VIBBI:

Matseðill:
Spergiskálssúpa
Villikryddaður lambainnanlærisvöðvi m/rauðvínssósu
Súkkulaðibananaís í sykurkörfu

Þá verð ég bara ölvaðri þar sem ég er soddans gikkur að ég borða ekkert að þessu ;o)
En já brainstormið elsku beljurnar mínar, nenni ekki að eyða heilum degi í smáralindinni eins og síðast

föstudagur, febrúar 11, 2005

Ferðasaga

Góðan daginn

Stundum geta Íslendingar verið einum of hjálplegir, tala nú ekki um landan sem er ekki alveg með enskuna á hreinu.

Íslendingar eru að keyra og svo sjá þeir bíl úti í kanti og sjá að þetta eru útlendingar.
Íslendingarnir fara út úr bílnum og segja
"Do you need help?"
útlendingarnir svara
" no no this is ok"
íslendingarnir gefa sig ekki og segja
yes yes we are gonna help you
Útlendingarnir: no no this is ok
Íslendingarnir: yes we are gonna help you


(þeir fara aftur inn í bíl og koma aftur út ur honum með reipi)


Útlendingarnir: what are you gonna do?
Íslendingarnir: first we are gonna reip you and then we are gonna ýt you

kveðja Djúsi systur

fimmtudagur, janúar 27, 2005

www.atvr.is

Þar sem helgin var frekar róleg hjá okkur kvk djúsí og við orðnar smá þyrstar vegna áfengisleysis að þá ákvaðum við nú að fá okkur smá rauðvín á þriðjudagskvöldið. Við opnuðum eina flösku og sátum í sjónvarpsholinu hjá Ernie að sötra það ;o)
Áður en við vissum af þá var flaskan tóm!!! Held það hafa bara gufað upp eða e-ð!!!
Okkur náttúrulega langaði í meira og hófst þá þvílík leit í skápunum heima hjá Ernie að finna e-ð rauðvín sem við gætum replac-að , við fundum 2 flöskur úr safni mömmu hennar. Þá var tengst netinu og farið að leita af því á atvr.is (mjög góð síða) Við fundum flösku og hún var ekki svo dýr þannig að við héldum áfram. Þetta var mjög fjörugt 2 stelpna partý, dansað um á g-strengjum og götótum buxum, vest að það var engin myndavél á svæðinu, sp. um að bjóða fótógrafernum næst ;o) Ölvun var orðin talsverð og um klukkan 4 þá voru allir sennilega allir farnir að sofa og við gátum ekki böggað fleirri þá þannig að við ákvaðum að fara að sofa. Svo vöknuðum við sprækar klukkan 7 til að mæta í skólan klukkan 8 á miðvikudagsmorgun...... YE RIGHT!!! Það var sko vottur fyrir þynnku og við gátum engan veginn vaknað. En takk samt Frikki og Kristinn fyrir að nenna tala við okkur, svara sms-um ;o)
Ég mæli eindregið með svona óvæntu þriðjudags-djammi, alveg sko til að brjóta upp vikuna.

Það er mega helgi framundan hjá meirihluta djúsí hópsins.
Við stefnum á að gera allt vitlaust á Akureyri ;o)
Dagskráin er þétt setin drykkju, partý og svalli

sunnudagur, október 24, 2004

hehe

Ég vil byðja þá afsökunar sem álbuðust inn á síðuna okkar og lentu í því að þessi óviðkunnuglega síða kom í staðinn, einn meðlimur liggur undir gruni og er verið að þrýsta að honum núna að segja sannleikan.
En já við heldri hluti djúsí erum duglegust að mæta þegar e-ð stendur til í vores skúle og mætum við í þessa ágætu vísó hjá vís á föstudaginn. Eftir það láu leiðir okkar hvor í sína átt. Ég fór í svona hálfpartin ríjúníon. Ég held bara að þessi fyrrum bekkjarsystir mín ætti bara að flytja inn í fristinn í Eimskip því það var svo kalt inni hjá henni að ég var að deyja og fór því ekki úr jakkanum, en já ég stend þarna í sakleysi mínu að ræða við fyrrum bekkjarbróður minn, stend þarna við ofna og var svo fegin að fá smá hita frá honum, svo var mér bara farið að verða ágætlega heitt, en þá heyri ég e-ð svona brak og brest fyrir aftan mig og svipurinn á gaurnum sem ég var að tala við snar breytist. Ég stóð þarna í ljósum loga, félagi minn hoppaði á mig og barði og barði á bakið á mér og við hlupum inn í eldhús og rifum mig úr jakkanum. Já ég kveikti í mér, jakkinn er handónýtur og ég þurfti að klippa af hárinu á mér því það sviðnaði ágætlega af því ;o) Ég var bara heppin að ég skildi ekki brenna sjálf, en það sama er nú ekki hægt að segja um hana Ernu HÚN ER BARA FEGIN AÐ BOLURINN HENNAR BRANN EKKI!!!!!!!! spurði ekkert hvort það væri í lagi með mig þegar hún heyrði þetta heldur bara ooohhhh BOLURINN MINN!!!! Er það nú vinkona ;o)
En þessi reynsla mín sýnir að ég á bara ekki að vera fín þegar ég er edrú, síðast þegar ég fór að djamma edrú þá braut ég næstum á mér nefið :o(

miðvikudagur, september 22, 2004

VOFF!!!!

">
Bara smá kroppur, ég rakst á þennan
hérna, mæli sko með því að allir kíki þarna, þetta er sko algert augnakonfekt fyrir okkur stelpurnar, það er sko samt e-ð fyrir alla þarna, konur og kalla. Og strákar ef þið skrollið alveg niður eða kíkið bara á sidebarið þá eru síður þar fyrir ykkur.


mánudagur, september 13, 2004

Mér finnst þetta alveg við hæfi að setja inn og meira til

Viðvaranir á bjórumbúðum
VIÐVÖRUN: Neysla áfengis er aðalástæða þess að þú ferð að dansa eins og hálfviti.
VIÐVÖRUN: Neysla áfengis getur leitt til þess að þú ferð að segja sömu leiðinlegu söguna aftur og aftur þangað til að félagar þínir vilja drepa þig.
VIÐVÖRUN: Neysla áfengis getur fengið þig til að trúa því að fyrrverandi elskhugar séu ennþá æstir í þig þegar þú hringir í þá klukkan fjögur að morgni.
VIÐVÖRUN: Áfengisneysla getur fengið þig til að halda að þú sért fallegri og gáfaðri heldur en eitthvað vöðvabúnt sem er við hliðina á þér.
VIÐVÖRUN: Áfengisneysla getur fengið þig til að halda að þú sért ósýnilegur.
VIÐVÖRUN: Áfengisneysla getur gefið þér þá ragnhugmynd að fólk sé að hlæja MEÐ þér.
VIÐVÖRUN: Áfengisneysla getur leitt til andremmu sem getur drepið hrægamm í 100 kílómetra fjarlægð.
VIÐVÖRUN: Áfengisneysla getur leitt til þess að þú segir yfirmanninum þínum hvað þér finnst Í ALVÖRUNNI á meðan þú ert að ljósrita rassinn á þér í jólaboðinu.
VIÐVÖRUN: Neysla áfengis getur leitt til þess að þú sjáir eitthvað hræðilegt (af óþekktri tegund/með óþekkt nafn) þegar þú snýrð þér við í rúminu.

Ég og KFC-inn erum alltaf best í öllu, ég var best að mæta minnst á síðustu önn og hann var bestur að mæta mest, og svo er hann bestur að blogga en ég er næst best sem ég sætti mig vel við ;o)
Á morgun verð kannski möguleiki á því að við verðum slegin út því að það er löngum kominn tími til að kenna fótógraferinum á þetta, hann þykist ekki kunna að blogga greyið.

Og já þetta var rosalegur flöskudagur og kostaði líka sitt :o( en þó enginn trúi því þá var engin þynka daginn eftir, mín var bara eldhress ;o) Enda rann af mér þegar ég fattaði að ég væri búin að glata símanum mínum :o(

Weblog Commenting by HaloScan.com