Fréttir af þeirri gömlu
Sko mér er ekki skemmt!!! Þetta var alveg hreint ömurleg helgi!!!!! Ég gerði ekkert!!!! :o(
Ég á enga vini og engum þykir vænt um mig. NEI!! Djók
Maður er orðin soddans ellismellur að allir vinir mans nenna ekki á djammið eða geta ekki tekið 2 daga í röð, ég er ein með lífi. Það er svona þegar maður á aldraða vini :o(
Ég var í svo miklu djammstuði á laugardaginn og því var sóað í sófanum með mö og pa :o( Bimmi þér er hér með bannað að fara útúr bænum að djamma án mín, því þú verður að sinna mér og passa að mér leiðist ekki, þó þú hafi reyndar bjargað hluta af laugardagskvöldinu með því að hringja í mig og skemmta mér smá. ;o)
Svo fer næsta helgi í það að læra undir helvítis próf!!!! Sem sé ég verð bara að detta í það í kvöld inni í herberginu mínu til að redda helginni
Ég vona að þetta hafi verið ÖMURLEG helgi hjá ykkur líka, og ef ekki vona ég bara að sú næsta eða bara gamlárskvöld verði misheppnað hjá ykkur... OG HANA NÚ!!!!!

