KFC-Tutta-Djusi-BMW

Þar sem erótíkin er ávalt í fyrirrúmi!

mánudagur, apríl 26, 2004

Horfið framan í stelpurnar þegar þær tala við ykkur

Nú ætla ég að segja ykkur frá smá reynslusögu frá mér, sem ætti vonandi að kenna ykkur að horfa framan í stúlkurnar þegar þið talið við þær en ekki góna milli brjóstana.
En ef maður rifjar upp söguna þá var þetta þannig að ákveðinn drengur, í partíunu sem ég var í, var e-ð að tala við mig (hann satt á móti mér) og eins og fólk gerir þá horfir það framn í þann sem það er að ræða við, en þarna var líka hann Jóí vinur minn og hann er nú ekki eins og fólk er flest og var sko EKKI að horfa framan í mig þegar ég var að tala....... svo stend ég upp úr sófanum og halla mér e-ð fram yfir borðið til að leggja áherslu á það sem ég var að segja og þá................RÚLLAR BARA ALLT HEILA KLABBIÐ út úr kjólnum (hann var soldið mikið fleyginn), og eini maðurinn sem sá þetta var sá sem horfir ekki framan í fólk(stelpur) þegar það talar!!!!! Því miður þá hefur þetta örugglega verið hræðileg lífsreynsla hjá honum og ég efa það stórlega að hann eigi nokkurntíma eftir að ná sér greyið.
En þetta er aðal ástæðan fyrir því af hverju ég er ekki í kjólum og þar síður fari í e-ð fleygið að ofan..

miðvikudagur, apríl 21, 2004

Nægur tími!!!! NEI!!!!

Jæja friðurinn er úti heima, ma og pa eru komin heim úr útilöndunum. Mamma þarf alltaf að tala svo mikið við mig og gleymir því alveg að það er halda kjafti tími á heimilinu þegar ég er í prófum því annars gæti ég afhausað þau.
En auðvitað keyptu þau nú e-ð handa prinsessunni sinni og var það þessi svaðalega flegni bolur þar sem brjóstin hreinlega rúlla upp úr, og svo keyptu þau eyrnalokkar í stíl, ég veit ekki alveg hvort þeir eiga að fara í eyrun eða hreinlega bara geirvörturnar þar sem þær ættu nú að sjást vegna þess hve fleginn bolurinn er.

Það er nú meiri þvælan sem rennur stundum úr trantinum á honum Bimma okkar, hann talar um að það sé nægur tími fyrir próf...Ég held nú ekki mér finnst ég ekki kunna neitt í neinu og það er sko ekki nægur tími, maður á eftir að fara yfir allt námsefnið og svo er það þetta Hevlítis VIR fag sem er að gera mig bilaða, ég verð bara að hætta að hugsa um það, láta það vera, hætta að stressa mig á þessu eina fagi.

Segið mér strákar hvernig getið þið verið svona chillaðir í próflestri??? Það eru bara 12 dagar í fyrsta próf og það er allt of stutt fyrir mig.

En hvernig gengur svo annars hjá ykkur að lesa??? Eru þið að verða komnir yfir allt efnið??? Fáið þið 10 í hagfræði og Rekstrarbókhaldi og VIR og stefnumótun??????

þriðjudagur, apríl 20, 2004

Próf. gaman gaman

Okey ég hef nú lítið að blogga um. Dagarnir eru allt of stuttir en samt alveg rosalega leiðinlegir, maður gerir ekki annað en að lesa og þykjast læra. Er að pæla í að vera dugleg á meðan prófin eru og vakna á morgnan og mætqa í ræktina áður en ég sest við eldhúsborðið :o) Vona að ég vakni betur við það.
Mín er líka búin að tala við deildarstjóra vor og hann segir að það sé í lagi að sleppa þessu ljóta gagnlausa vir-prófi og taka bara vöruþróun næsta vor, mér lýst svo mikið betur á það, er mikið að pæla í því að gera það.

Svo er ég líka farin að sakna djúsí gaurana, þetta eru án efa myndalegustu, fallegustu og sætustu strákarnir í öllum skólanum að það er ekki undur að ég sé farin að sakna þess að sjá þessar elskur.
KFC, BMW og Fótógrafer. I MISS U!!!!!!!!!!!!!!!!

miðvikudagur, apríl 14, 2004

Miklar áhyggjur

Ég er farin að hafa áhyggjur af nautunum okkar, þeir eru alveg að deyja úr píkuþörf eða brundfyllisgremju!!!. En held samt að þeir hafi verið að drukna í píkum þessa góðu páskahelgi því maður heyrði ekkert í þeim.
Ég vona svo innilega að hann KFC hafi gengið e-ð gott á gogginn því hann hefur verið mjög þurfi lengi að ég held, og svo frétti maður af honum BMW með e-i pjöllu.
Finnst maður eigi að heyra e-ð meira!!!!

sunnudagur, apríl 04, 2004

Aumingja ég og Fótógraferinn

Já já, nú sitjum við Frikki hér upp í skóla með kertaljós og tilheyrandi að læra á meðan þið hin eruð bara úti að leika ykkur :o(
Sem sé maður er bara búinn að læra alla helgina, ekki einu sinn horfa á eina bíómynd, gera rekstrarbókhald og búa til þetta fokking power point show!!!!! En svona er þetta bara við sitjum í súpunni að þurfa að kynna þetta ljótaverkefni, en það fer í ykkar verkahring að svara spurningum svona svo þið vitið það!!!!!!

fimmtudagur, apríl 01, 2004

Nokkuð flott

jæja þá er maður búin að laga þetta nú aðeins og vona ég nú að hann KFC-líus fari nú að hætt að röfla í mér

Alltaf verið að kvarta og kveina!!!

Já við verðum að fara að pumpa þessa fokking síðu. Geri það þegar maður er búinn að skila af sér öllum fokking verkefnum sem liggja á manni þessa dagana, og þá heimta ég smá hjálp!!!!!!!
En ef ég losna við kynninguna í Virðisstjórnun þá skal ég gera þetta alveg sjálf ;o)
Það líka eiginlega algert möst að við tökum eitt djamm saman fyrir prófin, annars er þetta bara dead sko!!!!

Weblog Commenting by HaloScan.com