KFC-Tutta-Djusi-BMW

Þar sem erótíkin er ávalt í fyrirrúmi!

fimmtudagur, janúar 29, 2004

Eru ekki allir vinir enn þá!!!!!

Jæja ég varð nú aðeins að stríða sumum í dag :o/ J´Lo kom seint í skólan og kom og stoppaði í smá stund að tala við okkur djúsí hérna áður en hún hitti hópinn sem hún var að fara að vinna með. Þegar hún var farin þá tók ég eftir því að hún hafði gleymd bíllyklunum sínum á borðinu hjá mér..hehehe!!! Ég náttúrulega stóðst ekki mátið og varð að færa bílinn hennar, ég hljóp út í kuldan og færði bílinn hennar um 4 bílaraðir aftar og nokkrar til hliðar..hihihi!!!
Svo fékk ég þennan rosa sammara og vildi fara að segja henni en strákarnir sem ég var að vinna í hóp með bönnuðu mér það þannig að Sorry ég gat ekki látið þig vita. Svo hringdi ég í hana og hún var brjál!!! ég er bara soldið hrædd :o/ Vona að hún hafi húmor fyrir þessu.....
En hún á eftir að segja hvernig þetta fór þegar hún fór út að leita að bílnum..

þriðjudagur, janúar 27, 2004

Svona á að vekja mann!!

Já maður er soddans mamma. Nú er ég heima að passa litla barnið mitt því það er búið að vera svo veikt :o( En þetta er allt að koma og er hún nú farin að dingla skottinu meira og gat meira að segja hoppað upp í sófa áðan þó það sé nú alveg stranglega bannað.
En það var nú ekki það sem ég ætlaði að segja, ég ætlaði að monta mig á því hvað ég á æðislega góða vinkonu, hún villimey. Ég hrekk upp við það í morgun að dyrabjöllunni er hringt og var ég nú ekki sátt, hver í andskotanum væri að vekja mig. Ég svar í dyrasíman og þá er þar voða hress manneskja sem segir bara: hæ þetta er ég!!! Ég fer þá til dyra og opna og stendur þá ekki þessi elska með ný bakað bakelsi úr bakaríinu!!! NAMMI NAMM svona má vekja mig á hverjum morgni :o) Ef hún hefði ekki verið með neitt þá hefði hún örugglega misst hausinn, þessi elska.
Ég vil bara segja takk fyrir mig villimey þetta var algert æði!!!!!!

miðvikudagur, janúar 21, 2004

KAFFIHÚS!!!!

Jæja stefnan er tekin á kaffihús á morgun, en við sjáum til hvenrig mætingin verður, ætli það verði ekki eins og vanalega bara ég og Bimmi sem verðum í banana stuð og viljum ólm komast út. Við förum þá bara ein út,nú hættum við ekkert við okey???
J´Lo hefur nú loksins löggilda ástæðu ef hún kemur ekki og er ekki hægt að vera neitt fúll útaf því, ekkert við því að gera ;o)
Svo vil ég taka það fram að hann eiginmaður þinn á ekki að einoka þig svona, það er ekki hægt að tala við þig í síman í friði, þá kemur hann bara að segja manni að hætt að tala því það sé hans tími!!!! FOKK OFF!!! Maður á að leifa öðrum líka. Svo tímir hann ekki einu sinni að lána eitt dót...

Endalaust væl

Já KFC þið virðist geta boðið upp á e-ð meira en þessir vitleysingar sem hanga á barnum að bjóða stelpum í glas í von um e-ð í staðin.
En það er annað mál sem ég þarf að koma að og það er að hún J´Lo eða Hvalarassgat var að væla í mér í gær og segja að ég væri hætt að leika við hana á kvöldin, ég sagði að hún væri alltaf svo upptekin sem er rétt, hún hefur ekki komsit síðustu skipti sem við höfum gert e-ð og við höfum sleppt því að gera e-ð því hún kemst ekki með... ÞÚ ERT VÍST UPPTEKIN!!!!
Það eina sem ég er búin að vera að gera er að vera í ræktinni, læra og leika við Boccia og Holland. En ekki það sem þið haldið og hana nú, plús það gaurinn er ekki búinn að vera á landinu þannig að ég hef ekkert getað gert!!!!!

þriðjudagur, janúar 20, 2004

Report af Djúsí Túttu

Eru ekki allir sáttir við úrslitin í Idol!!!??? Það er ég alla vega, eyddi föstudagskvöldinu í faðmi fjölskyldunnar að horfa á Idol og fór snemma að sofa því ég átti að mæta í vinnu á laugardagsmorgun.

Það er nú aldrei auðvelt að vakna :o/ En ég mætti á réttum tíma þrátt fyrir ófærð. Það mætti aðeins einn krakki og vorum við J´Lo með áhyggjur að hann myndi ekki vilja gera neitt því hann var einn, en okkur tókst að fá hann til að leika við okkur í Bandi, hamgangurinn var mjög mikill og var þetta æsi spennandi leikur ég og litli strákurinn vorum komin að markinu og hann var að taka skot á markið,, sveiflaði kylfunni hátt upp í loft og tók þessa rosa sveiflu sem endaði í andlitinu á mér :o) Ég fékk þessa rosa fínu bólgnu neðri vör, sem ég var ekki neitt rosa sátt við því ég var að fara út um kvöldið, ég minnti samt soldið á hana Angelinu Jolie.... Jæja en svo fórum við J´Lo heim til hennar í hléinu og fórum við að basla við það að taka e-a snúru í sundur, hún náði í skæri og vorum við báðar að gaufa yfir þessari snúri þegar höndin á henni rann með skærin beint í bólakaf í puttann á mér, það blæddi all rosalega...

Ég var nú ekki í neitt rosalegu djammstuði um kvöldið en dröslaði mér út og til J´Lo. Þar stútuðum við rauðvínsflösku, svo var lagt í bæinn, við fórum inn á Pravda. Djöfull getur nú stundum verið gott að vera stelpa :o) Við hittum þarna 2 Svía, sem við vildu endilega bjóða okkur í glas og auðvitað segir maður ekki nei við svoleiðis við vorum í soldin tíma með þeim. Svo fórum við upp á dansgólfið, þar fundum við e-n annan til að bjóða okkur í glas, og svo enn annan, þangað til að ég hreinlega missti tölu ;o) Svo var förinni heitið á Hverfis, á leiðinni þangað flaug ég á rassgatið :o( Ekki gott. Þynnkan sem fylgdi líka næstu 2 daga var heldur ekki góð. Ég komst líka að því að ég er einstaklega góð í því að koma mér í vandræði..

Þetta var samt roslega skemmtó djamm hjá okkur, það eina sem vantaði voru djúsí gæjarnir, vonandi komast þeir næst :o)

miðvikudagur, janúar 14, 2004

3 FOKKING TILRAUN

nú er ég búin að vera voða dugle að blogga 2 daga í röð svo datt mér í hug að kíkja á þetta í gær þegar ég hafði ný lokið við að blogga en þá sá ég að það hafði ekkert komið :o( Þannig að nú er þetta 3 fokking tilraun og ef það kemur ekki núna þá er ég alveg hætt að nenna þessu drasli.
Helgin var nokkuð góð ég slasaði mig ekkert og gerði ekkert af mér, enginn skandall. Reyndar held ég að sumir af krökkunum sem ég var með á djamminu hafi haldið að ég væri e-r helvítis kyssidúkka, því það var hreint alltaf verið að kyssa mig. Ég var sem sé á rejúníoni að hitta gamla skólafélaga (þau eru gömul EKKI ég) Pelinn gerði náttúrulega mikla lukku og mér tókst að láta klára úr honum.
Það var nátttúrulega mikið drukkið og nokkrir náðu upp mikilli ölvun. Það var byrjað á Hard Rock Cafe þar sem mér tókst að hella heilum bjór yfir hana vinkonu mína :o/, síðan var stefnan tekin á Kaffi Hressó en ég og nokkrir aðrir óþekktarormar fórum soldið annað við stungum af og fórum beint á Gaukinn, þar bauð gamall félagi okkur upp á einn hræðilega góðan drykk sem var soldið mikið áfengur og gerði hann örugglega útslagið hjá okkur stelpunum, því við þurftum ekki meira þetta kvöld mér tókst þar að hella yfir sjálfan mig..., þegar búið var að klára úr glösunum var farið eins og fokking ALLTAF og helvítis Hverfisbarinn. Maður er náttúrulega soddans vippari að maður fer bara í vip-röð og rennur inn :o) Og já meira svo byrjaði strákur sem ég var einu sinni soldið spennt fyrir og hitti á síðasta djamminu fyrir próf á síðustu önn allt í einu að senda á mig sms, HVAÐ ER AÐ!!! það eru að verða 2 mánuðir síðan!!! Það er nú soldið langt, ég hélt samkvæmt mínum upplýsingum frá Bimma og KFC að það væri 2-3 dagar en ekki 2-3 MÁNUÐIR!!!
Þó ég hafi nú verið með kjaft síðast þegar ég skrifaði og leiðinlegar yfirlýsingar þá vona ég nú samt að helgin hafi verið góð hjá ykkur líka.

Weblog Commenting by HaloScan.com