KFC-Tutta-Djusi-BMW

Þar sem erótíkin er ávalt í fyrirrúmi!

miðvikudagur, september 22, 2004

VOFF!!!!

">
Bara smá kroppur, ég rakst á þennan
hérna, mæli sko með því að allir kíki þarna, þetta er sko algert augnakonfekt fyrir okkur stelpurnar, það er sko samt e-ð fyrir alla þarna, konur og kalla. Og strákar ef þið skrollið alveg niður eða kíkið bara á sidebarið þá eru síður þar fyrir ykkur.


mánudagur, september 13, 2004

Mér finnst þetta alveg við hæfi að setja inn og meira til

Viðvaranir á bjórumbúðum
VIÐVÖRUN: Neysla áfengis er aðalástæða þess að þú ferð að dansa eins og hálfviti.
VIÐVÖRUN: Neysla áfengis getur leitt til þess að þú ferð að segja sömu leiðinlegu söguna aftur og aftur þangað til að félagar þínir vilja drepa þig.
VIÐVÖRUN: Neysla áfengis getur fengið þig til að trúa því að fyrrverandi elskhugar séu ennþá æstir í þig þegar þú hringir í þá klukkan fjögur að morgni.
VIÐVÖRUN: Áfengisneysla getur fengið þig til að halda að þú sért fallegri og gáfaðri heldur en eitthvað vöðvabúnt sem er við hliðina á þér.
VIÐVÖRUN: Áfengisneysla getur fengið þig til að halda að þú sért ósýnilegur.
VIÐVÖRUN: Áfengisneysla getur gefið þér þá ragnhugmynd að fólk sé að hlæja MEÐ þér.
VIÐVÖRUN: Áfengisneysla getur leitt til andremmu sem getur drepið hrægamm í 100 kílómetra fjarlægð.
VIÐVÖRUN: Áfengisneysla getur leitt til þess að þú segir yfirmanninum þínum hvað þér finnst Í ALVÖRUNNI á meðan þú ert að ljósrita rassinn á þér í jólaboðinu.
VIÐVÖRUN: Neysla áfengis getur leitt til þess að þú sjáir eitthvað hræðilegt (af óþekktri tegund/með óþekkt nafn) þegar þú snýrð þér við í rúminu.

Ég og KFC-inn erum alltaf best í öllu, ég var best að mæta minnst á síðustu önn og hann var bestur að mæta mest, og svo er hann bestur að blogga en ég er næst best sem ég sætti mig vel við ;o)
Á morgun verð kannski möguleiki á því að við verðum slegin út því að það er löngum kominn tími til að kenna fótógraferinum á þetta, hann þykist ekki kunna að blogga greyið.

Og já þetta var rosalegur flöskudagur og kostaði líka sitt :o( en þó enginn trúi því þá var engin þynka daginn eftir, mín var bara eldhress ;o) Enda rann af mér þegar ég fattaði að ég væri búin að glata símanum mínum :o(

miðvikudagur, september 08, 2004

Þið eruð bara haldin einbeitingarskort á háu stigi

Hvaða röfl er þetta útaf e-m smá punktum, þið eruð bara með einbetingarskort á háu stigi eða bara öfundsjúk að við séum með svona flotta punkta!!!!!
En útaf öllu þessu væli þá skal ég fjarlægja þetta, en það virtust allt í einu fleirri þurfa að tjá sig en venjulega þegar þeir voru ;o)

En já fyrsta vísó og bjórkvöld er að næstu grösum, og munu 2 beljur beila á því, J´Lo hefur nú löglega afsökun og er henni fyrirgefðið, en Bimmi hefur ekki nógu góða afsökun, segist vera fari í e-ð Kófart.

miðvikudagur, september 01, 2004

Ekki skemmtó

Svo virðist vera að við kvk beljur munum ekki ná að standa við orð okkar, í fyrsta lagi þá missir J´Lo af fyrsta bjórkveldinu útaf þessu fótbolta drasli, því miður þá þurftu þær að vera svona góðar að þær gjörsamlega vinna allt. Og svo ég hún Tútta sjálf kemst ekki í vísóferðina sem búið er að fá deit á því ég er að fara til landa út, að versla versla versla versla versla versla versla og kannski versla aðeins meira ;o)
En við verðum þá bara að bæta það upp á e-n annan hátt.
En mikið djöfull er erfitt að sitja á rassgatinu svona lengi, það er bara ekki fræðilegur að halda athyggli út þennan lengsta dag skólans.

Weblog Commenting by HaloScan.com