Horfið framan í stelpurnar þegar þær tala við ykkur
Nú ætla ég að segja ykkur frá smá reynslusögu frá mér, sem ætti vonandi að kenna ykkur að horfa framan í stúlkurnar þegar þið talið við þær en ekki góna milli brjóstana.
En ef maður rifjar upp söguna þá var þetta þannig að ákveðinn drengur, í partíunu sem ég var í, var e-ð að tala við mig (hann satt á móti mér) og eins og fólk gerir þá horfir það framn í þann sem það er að ræða við, en þarna var líka hann Jóí vinur minn og hann er nú ekki eins og fólk er flest og var sko EKKI að horfa framan í mig þegar ég var að tala....... svo stend ég upp úr sófanum og halla mér e-ð fram yfir borðið til að leggja áherslu á það sem ég var að segja og þá................RÚLLAR BARA ALLT HEILA KLABBIÐ út úr kjólnum (hann var soldið mikið fleyginn), og eini maðurinn sem sá þetta var sá sem horfir ekki framan í fólk(stelpur) þegar það talar!!!!! Því miður þá hefur þetta örugglega verið hræðileg lífsreynsla hjá honum og ég efa það stórlega að hann eigi nokkurntíma eftir að ná sér greyið.
En þetta er aðal ástæðan fyrir því af hverju ég er ekki í kjólum og þar síður fari í e-ð fleygið að ofan..

