KFC-Tutta-Djusi-BMW

Þar sem erótíkin er ávalt í fyrirrúmi!

miðvikudagur, júní 16, 2004

Gaman gaman í vinnunni

Það var andskotan ekkert að gera í vinnunni í gær þannig að ég hafði nægan tíma til að leika mér í vinnunni, og eitt af því sem ég gerði var að æra hana Ernu fernu alveg upp úr skónum, hún var alveg hreint að missa sig við mig(held hún sé ekki að fá neitt), þannig að ég ákvað að hætta að bögga hana, svona svo hún hætti nú ekki alveg að tala við mig ;o)

Þá tók nú ekkert betra við, þegar lítið er að gera í vinnunni þá á einn vinnufélagi minn það til að sörfa smá á netnu og skoða soldið ....... myndir, og galar alltaf á mig: Rósa!!! Rósa!! komdu og sjáðu þennan maður!!!. Við erum sem sé að skoða nakta karlmenn sem eru að reyna að hössla á netinu með því að sýna mjög ýtarlegar myndir af öllum líkamanum nema hausnum, hef meira að segja séð mynd upp í boru og hhmmm já þið getið ímyndað ykkur rest. Þetta er bara simple homma klám!!! sem ég myndi ekki mæla með fyrir viðkvæmar sálir.
Og já sorry strákar ekki lesa þetta sem var á undan ;o)

En annars þá er voða lítið að gerast, Ferna er að væla í mér að koma á djammið í kvöld, en mér heyrist nú vera nóg að gera hjá henni í kvöld þannig að ég hlusta ekki á þetta væl. En samt þá veit maður aldrei hvað gerist ;o) Eru e-r fleiri að hugsa um að fara á djammið í kvöld???

föstudagur, júní 11, 2004

jámms það er soldið langt síðan maður hefur bloggað e-ð hérna.
Það var soldið lítið að gera í vinnunni hjá mér í morgun þannig að ég fór náttúrulega að leika mér á netinu smá og fór inn á íbúðarlánasjóð og ákvað að ath hversu hátt greiðslumat ég fengi, og ég fyllti allt út mjög samviskusamlega. Svo ýti ég á reikna, og þá kom út að ég gæti leypt húsnæði fyrir 2.800.000 :o/ E-ð finnst mér það nú lítið, en þá benti hún Arna vinkona mín mér á það að ég gæti keypti mér bara mjög flottan húsbíl sem er bara alger snilld, þá getur maður til dæmis um helgar bara keyrt húsið niður í bæ og haldið partý og svo bara gengið heim eftir djammið og svo líka ef manni langar í rólegt og gott umhverfi þá bara farið út úr borginni, maður væri aldrei fastur á einum stað, til dæmis á veturna bara leggja húsinu á bílastæði skólans og þá get ég bæði sofið lengur og lagt mig strax eftir tíma. Þetta er alveg e-ð til að taka til athugunar ;o)

miðvikudagur, júní 02, 2004

Til hamingju með daginn Frikki!!!

jæja Ég vil óska honum Frikka litla innilega til hamingju með daginn og þakka fyrir gott boð.
En voðalega hef ég misst af miklu þessa 5 daga sem ég var í burtu!!!! Bimmi kominn með gellu og KFC með nýjan bíl, þá er hann náttúrulega bara sjálfskipaður driver í kvöld ;o)

Svo er það ég næst, það er spurning hvað maður gerir og hvort maður sé að bjóða í hús eða ekki.

Weblog Commenting by HaloScan.com