www.atvr.is
Þar sem helgin var frekar róleg hjá okkur kvk djúsí og við orðnar smá þyrstar vegna áfengisleysis að þá ákvaðum við nú að fá okkur smá rauðvín á þriðjudagskvöldið. Við opnuðum eina flösku og sátum í sjónvarpsholinu hjá Ernie að sötra það ;o)
Áður en við vissum af þá var flaskan tóm!!! Held það hafa bara gufað upp eða e-ð!!!
Okkur náttúrulega langaði í meira og hófst þá þvílík leit í skápunum heima hjá Ernie að finna e-ð rauðvín sem við gætum replac-að , við fundum 2 flöskur úr safni mömmu hennar. Þá var tengst netinu og farið að leita af því á atvr.is (mjög góð síða) Við fundum flösku og hún var ekki svo dýr þannig að við héldum áfram. Þetta var mjög fjörugt 2 stelpna partý, dansað um á g-strengjum og götótum buxum, vest að það var engin myndavél á svæðinu, sp. um að bjóða fótógrafernum næst ;o) Ölvun var orðin talsverð og um klukkan 4 þá voru allir sennilega allir farnir að sofa og við gátum ekki böggað fleirri þá þannig að við ákvaðum að fara að sofa. Svo vöknuðum við sprækar klukkan 7 til að mæta í skólan klukkan 8 á miðvikudagsmorgun...... YE RIGHT!!! Það var sko vottur fyrir þynnku og við gátum engan veginn vaknað. En takk samt Frikki og Kristinn fyrir að nenna tala við okkur, svara sms-um ;o)
Ég mæli eindregið með svona óvæntu þriðjudags-djammi, alveg sko til að brjóta upp vikuna.
Það er mega helgi framundan hjá meirihluta djúsí hópsins.
Við stefnum á að gera allt vitlaust á Akureyri ;o)
Dagskráin er þétt setin drykkju, partý og svalli

